GOTT er heilsusamlegur og skapandi fjölskylduveitingastaður í Vestmannaeyjum og Reykjavík sem notar aðeins ferskt og heilnæmt hráefni.
Allar sósur, soð, súpur, brauð og kökur eru löguð frá grunni á staðnum. Við sækjum ferskan fisk beint af fiskmarkaðnum á hverjum morgni. Yfirkokkurinn Sigurður Gíslason, fyrrum meðlimur kokkalandsliðs Íslands og konan hans Berglind Sigmarsdóttir reka veitingastaðinn í Vestmannaeyjum og Ómar Stefánsson, yfirkokkur og Klara Óskarsdóttir, veitingastjóri reka staðinn í Reykjavík. Berglind og Sigurður hafa gefið út tvær metsölu matreiðslubækur á Íslandi og önnur þeirra var gefin út í Þýskalandi.
Hér fyrir neðan má sjá ýmsar blaðaumfjallanir um GOTT